Ađalvalmynd

Auglýsing

sumarfjöriđ ađ byrja

11. maí 2009 klukkan 22:19
 

Þá er sumarið komið og fjörið að byrja.

Af okkur er allt gott að frétta. Jón Arnór og Védís Gróa voru að ljúka dansnámskeiði í leikskólanum sem endaði með sýningu fyrir foreldra. Þau voru bara flott. Jón Arnór fór inn í sig fyrsta skipti sem hann sýndi dans en þetta árið var hann bara flottur og naut þess að sína okkur hvað hann var flottur. Við erum búin að fara í sveitina og berja lömbin augum. Við fylgdumst með þegar Ragnheiður frænka dróg út lamb og krökkunum fannst þetta mögnum sjón. Við erum búin að vera á flakki, farið í heimsókn til langömmu og langafa og kíkt á seiðin hans afa. Farið til ömmu og afa á Hvolsvelli og átt þar góðar stundir, farið til Frikka og Tótu. Við komum við á Gíslholti á leið í bæinn eftir páska og kíktum þar á rosa flotta lifandi páskaunga. Við erum búin að fara nokkrum sinnum til ömmu Ruth og hún kom líka til okkar fyrir páska og kenndi okkur að skreyta páskaegg. Við útbjuggum rosa flott páskatré með henni.

Jón Arnór er farinn að hjóla án hjálparadekkja. Hann hefur nú þegar afrekað að hjóla í Garðabæinn til Svenna frænda og til baka. Hann er kominn með sumarklippinguna sína, en ég snoðaði hann í síðustu viku.

Védís Gróa er farin að hjóla á gamla hjólinu hans Jóns Arnórs en þegar við förum lengri vegalengdir þá fer hún á sérsmíðaða hjólið sem hægt er að tengja við hjólið hans Gumma og hjólar með pabba sínum. Védís fékk ælupestina um daginn og var mjög veik greyið í rúman sólarhring. Gummi var í Köben á þeim tíma svo ég var voða fegin að fá Jón Arnór heim úr leikskólanum þar sem hann hjálpaði mér heilmikið með DA á meðan við VG vorum ofan í klósettskálinni.

Daníel Ari er farinn að flytja sig um allt gólf með frjálsri aðferð. Hann er löngu farinn að velta sér af baki á maga og getur nú setið einn á gólfinu. Hann spyrnir reyndar stundum í gólfið þannig að hann dettur aftur á bak svo við setjum alltaf púða sem tekur af honum fallið. Hann byrjaði í ungbarnasundi um miðjan apríl. Hann byrjaði strax í fyrsta tíma að kafa og standa í lófanum á Snorra. Eftir 4 tíma er hann farinn að gera allt sem eldri og reyndari börnin gera, litli snillingurinn. Hann er búinn að vera frekar lítill, hefur verið með hor í langan tíma. Ég fór svo með hann til læknis sem greindi eyrnabólgu í hæ eyra. Hann er núna á sýklalyfi, fær þvílíkan niðurgang af þeim. Hann er samt allt annað barn núna, hugsa að ég fari að gefa honum graut bráðum því hann er svo duglegur.

 Gummi hefur verið í vinnunni síðustu vikurnar svo mín hefur verið mikið grasekkja að undanförnu. Hann fór til Köben, Svíþjóðar og fékk svo erlenda gesti hingað í viku. Hann var svo á vakt í millitíðinni. Getur verið erfitt þegar vökunæturnar hafa verið margar en við erum orðin nokkuð sjóuð að vera án pabba, finnst bara bonus að hann hætti í vinnunni á venjulegum tíma. Við erum byrjuð að vinna í garðinum, erum að fara setja niður í matjurðagarðinn. Við erum á leiðinni í sumarbústað fjölskyldan saman í lok maí, getum ekki beðið. Næstu helgi ætla unglingarnir að fara til ömmu og afa á Hvolsvelli og við Gummi ætlum aðeins að rifja upp hjónabandið og njóta lilla aðeins. Við eigum brúðkaupsafmæli 27.maí næstkomandi og ætlum að halda aðeins upp á það næstu helgi.

 Við hlökkum svo mikið til að krúsa um með tjaldvagninn okkar í sumar, komumst vonandi í það fljótlega.

 Nóg í bili........

Hildur Kristín Sveinsdóttir

Pestabćli

04. mars 2009 klukkan 14:29

 

Ýmislegt hefur á daga okkar drifið að undanförnu.

 Við Daníel Ari fórum á námskeið um miðjan febrúar sem hét ,,Sport Specific Rehabilitation" hjá Robert Donatelli Doktor frá Los Angeles. Ég mætti með heila búslóð og litla viðhengið mitt, hefði getað gist þarna án þess að skorta neitt. Þetta voru tveir langir dagar en litli mann var algjör engill allan tímann öllum til mikillar undrunar. Í kjölfarið fékk ég leyfi til að mæta með hann á næst námskeið um miðjan mars; ,,Introduction Of The Pelvic Girdle" hjá Diane Lee.

 Við fjölskyldan héldum upp á bollu- sprengi og öskudag með pompi og prakt, átum yfir okkur alla daga. Þá vikuna veiktist Védís Gróa og varð mjög mikið veik. Hún var með hálsbólgu, kvef, háan hita, upp- og niðurgang. Á föstudaginn var hún svo komin með eyrnabólgu, fékk sýklalyf og er nú með niðurgang af lyfjunum = skítlegt ástand það. Vikan  hjá frúnni snérist um hjúkrun dag og nótt og bakstri, þá aðallega á daginn.

 Síðustu helgi var svo afmælishelgin mikla. Gummi átti afmæli á laugardeginum. Hann var vakinn upp með afmælissöng, pakka og köku í rúmið. Um kvöldið eldaði svo frúin góðan mat handa kalli en þar sem við vorum svefnlaus eftir veikindi vikunnar var skriðið beint í rúmið eftir mat og rotast. Næsta morgun var svo annað eins gert, vakið stóra drenginn okkar með afmælissöng, köku og pakka. Hann var reyndar svo spenntur fyrir deginum að hann var vaknaður fyrir allar aldir. Við þurftum að semja við hann að liggja upp í rúmi í smá tíma. Hann lá reyndar ekki heldur sat hann bísperrtur og hlustaði á hvert hljóð frammi. Svo spurði hann í sífellu:,, Af hverju heyrist í diskum? Af hverju er Védís Gróa að spyrja hvað hún á að gera? Af hverju er VG að færa stólinn? Af hverju er pabbi að kveikja á kertum? O.s.frv. Ekki beint óvænt þjónusta í rúmið en enga að síður gaman. Daníel Ari vaknaði sárveikur þennan dag en við höfðum það ekki í okkur að fresta afmælinu því stóri púkinn okkar var búinn að hlakka svo lengi til. Það var haldið upp á afmælið með stórveislu og fullt af gestum en DA var geymdur inni í herbergi á meðan og sem betur fer svaf hann öll herlegheitin af sér. Um kvöldið var hann orðin svo veikur og máttfarinn að ég var um það bil á leið á Barnaspítalann með hann. Mér var ráðlagt að gefa honum stíl og eftir það leið honum svo mikið betur að við biðum fram á næsta morgun. Á mánudaginn var hann orðinn svo mikið betri að við vorum mun rólegri. JA vaknaði hins vegar með mikla hálsbólgu og Gummi var orðin mjög slappur.

 Ég var sem sagt heima með 3 veik börn á mánudaginn. Það er eitt að vera ein með þau hraust og annað þegar allir eru veikir, sumir búnir að vera inni í viku og frúin ekki búin að sofa í viku. Það bjargaði öllu að Steinunn systir bauð VG í heimsókn seinnipartinn, Gummi kom snemma heim og fór með JA í bílskúrinn og ég og DA náðum að leggja okkur í 2 klst. Ég var svo komin í rúmið fyrir 22 um kvöldið og steinrotaðist með litla manninum. Allir eru að braggast, JA er heima en hitalaus, VG fór í leikskólann og DA er allur að koma til, bara með hósta og hor núna. Gummi er líka að hressast. Mér var hleypt í ræktina í gærkveldi og svo lá ég í heitu baði á eftir og mér líður mikið betur eftir það. Eftir svona törn er maður samt ljótastur, sveittastur og myglaðastur svo að mitt fyrsta verk í dag var að panta mér klippingu og líður strax betur.

 Það er gaman að segja frá því að Gummi fór á afmælisdaginn sinn á bílasölu að sýna ,,súbaróinn" okkar og kom heim á FORD EXPLORER, 2003, leðurklæddur og keyrður 66.000 km. Settum sem sagt ,,súbbann" upp í og þurftum að bæta við 300.000 kr. Gummi er búinn að vera á flakki milli bílasala síðustu 2 mánuði með bílastólana að máta og þetta var lendingin. Við erum voða ánægð með ameríska kaggann. Nú er það bara að selja ECONOLINE´inn okkar, vona samt að við eigum hann fram yfir páska ef það verður fjalla/skíða/jöklafæri.

Daníel Ari mældist í 9 vikna skoðun rúmlega 5600 g og 61 cm = þvílík stækkun
 
Við Daníel Ari ætlum svo næsta föstudag að mæta á ,,Dag Sjúkraþjálfunar" ef heilsa leyfir og vonandi eigum við fjölskyldan rólega helgi.

 luv

Hildur Kristín Sveinsdóttir

Daníel Ari

22. febrúar 2009 klukkan 20:34
 

Þá er búið að skíra litla prinsinn okkar og fékk hann nafnið Daníel Ari. Daníel er nafn sem við höldum bæði upp á og mátuðum á Jón Arnór á sínum tíma. Okkur fannst það hins vegar ekki passa nógu vel með Jóni svo við ákváðum að eiga það inni. Eins og sést á færslunni hér að ofan var auðvelt að finna nafn með Daníel þar sem Védis Gróa var búin að því fyrir okkur.

Daníel þýðir: Guð er dómari minn (Siggi Bjarni er með tattú á bakinu: Only God can judge me....gaman að því)

Ari þýðir: Örnin hraðfleygi, á vel við litla manninn þar sem hann kom mjög hratt í heiminn þegar hann var tilbúinn.

Við skírðum hér heima eins og áður og okkar allra nánasta fjölskylda var viðstödd athöfnina.. Við vorum með súpu og brauð og svo skírnarköku með kaffinu. Ruth bjó til ljúffenga sjávarréttasúpu og mamma bakaði skírnarkökuna. Ég bætti svo 2 frönskum súkkulaðitertum við. Þetta var ósköp ljúf stund hér í Skálaheiðinni. Þeir vinir sem höfðu samband voru svo neyddir í að gera afgöngum skil. Séra  Íris var svo góð að vígja drenginn eins og hin tvö. Það má segja að hún sé aðeins farin að þekkja okkur fjölskylduna því hún gifti okkur Gumma lika. Krakkarnir halda mikið upp á Írisi eins og sjá mátti þegar þau skírðu annan heimalinginn á Litlu-Reykjum eftir henni.

 

Af okkur er allt gott að frétta. Allt gengur sinn vanagang. Við komumst að því í 6 vikna skoðuninni að Daníel Ari var búinn að lengjast um 8 cm og þyngjast um 1500 g, ekkert  smá duglegur að stækka. Védís Gróa og Jón Arnór eru búin að vera núna í íþróttaskóla Breiðabliks á laugardögum og standa þau sig voða vel þar. Við erum nýbúin að funda með deildarstjóra deildar Védísar Gróu I leikskólanum og lét hún mjög vel af stelpunni. Hún passar ætíð upp á að engin byrji að borða við matarborðið fyrr en búið er að segja gjörið svo vel. Hún er líka dugleg að hjálpa hinum að klæða sig út og þiggur gjarnan þjónustuna ef aðrir vilja hjálpa henni. Henni eru settar þær reglur að fá bara að vera í pilsi á föstudögum þar sem Jón Arnór (sem vildi á tímabili alltaf fara í stuttbuxum í leikskólann) var búinn að finna það út að hann gæti alveg eins verið í sokkabuxum og stuttbuxum eins og VG í sokkabuxum og pilsi. Þau eru að læra dagana og Védís Gróa tengir alltaf pils við föstudaga. Þegar eitthvað af stelpunum eða leikskólakennurunum mæta í pilsi þá spyr hún alltaf hvort það sé föstudagur. Þegar hún svo kemst að því að svo er ekki er viðkomandi skammaður fyrir að vera í pilsi. Nú hafa leikskólakennararnir tekið þann pól I hæðina að mæta bara í pilsi á föstudögum svo það ruglist ekki allt kerfið. VG er sem sagt búin að koma á nýrri reglu á Lundi, seig stúlkan sú. Jón Arnór er rosalega duglegur strákur, farinn að skrá sig inn á heimlistölvuna sjálfur og starta leik, en núna veit hann að það má ekki nema með samþykki foreldra. Hann skrifar alla stafi og er farinn að leysa einföld reiknisdæmi. Hann komst sjálfur að því að þegar Daníel yrði 3 ára þá yrði hann sjálfur orðin 7 ára.

 

Þessa dagana vinnum við Gummi hörðum höndum að finna bíl fyrir fjölskylduna sem hýsir bílstólana 3 í aftursætinu. Gummi vill ekkert nema 4W bíla og það get ég sagt ykkur að slíka bíla er ekki auðvelt að finna sem eru á viðráðanlegu verði. Núna rúntar Gummi milli bílasala með stólana til að máta í aftur í  bíla. Gaman að því.....fáið frekari frettir síðar. Gummi kellu sinni flottan morgunmat og gjafakort í Mecca Spa I tilefni konudags,.....get ekki beðið eftir að taka það dekur út. Yndislegur maður Þeir feðgar eiga svo afmæli næstu helgi og áætlum við að halda smá teiti að því tilefni.

Later

luv

Hildur Kristín Sveinsdóttir

Drengur fćddur, jólahátíđ og margt fleira.

16. janúar 2009 klukkan 19:07
 

Þá erum við orðin stórfjölskylda hér í Skálaheiðinni en við eignuðumst annan son 18.des síðastliðinn. Frúin var úrkumla vonar um að barnið mundi fæðast fyrir jól. Þegar ég hafði þrifið klósettið í hundraðasta skiptið, skúrað gólfið, þvegið af rúmunum 3 sinnum og þrammað Kópavoginn svo gangstéttar létu á sjá, var mín farin að finna út hvaða óléttukjól skildi draga fram fyrir jólahátíðina.

 

Fyrsta daginn sem ég var hætt að búast við að eitthvað mundi gerast fór allt af stað og þá tók  afneitunin við. Var viss um að þetta væri bara eitt af þessum skiptum sem verkirnir væru aðeins að stríða mér og myndu svo hætta. Ég var á leið á Selfoss að heimsækja ömmu Sveinu ásamt Steinunni systur þann. Ég hafði það af að gera jólaísinn þennan sama dag rétt áður en lagt var í hann upp í Árbæ til Steinunnar. Ég stóð mig að því að vera farin að dansa mig í gegnum verkina við hrærivélina sjóðheitum lambada dansi. En á Selfoss skildi farið. Ég tók með mér TNS tækið (verkjastillandi rafmagnsmeðferð), pakka til ömmu og konfekt. Þegar í Árbæ var komið hætti ég við að fara því ég vildi ekki leggja það á Steinunni og fjölskyldu að hafa mig í þessu ástandi í bílnum alla leið á Selfoss. Þegar heim var komið (16:30) fóru hins vegar hlutirnir að gerast og klst síðar var ég búin að panta Ragnheiði vinkonu hingað til að taka við krökkunum þar til mamma kæmi. Mamma (sem var svo heppilega stödd á Selfossi til að hitta okkur systur hjá ömmu) var beðin um að hætta við heimferð og koma þess í stað hingað til að taka við börnunum. Ég var hin rólegasta þegar ég fór af stað á fæðingadeildina, kom meira að segja aftur upp úr bílnum til að kveðja krakkana. Á þeim tímapunkti var ég enn ekki sannfærð um að fæðingin væri farin af stað, náði meira að segja að sannfæra Ragnheiði að ég væri hugsanlega að koma aftur heim.

 

Við vorum komin upp á fæðingadeild kl 19:15. Ljósmóðirin var ekki sannfærð að ég væri komin af stað, ekki frekar en ég. Hún skoðaði mig og komst að því að best væri að hraða mér á fæðingastofu því ég var komin með 7 í útvíkkun. Þegar inn á fæðingastofu (stofa 19 á Hreiðrinu) var komið leið ekki nema klst og þá var drengurinn kominn. Ég fór í bað þegar ég var orðin þreytt á TNS tækinu og þar fæddi ég prinsinn. Hann var 3635g og 51 cm.

 

Hann var strax rosalega duglegur að drekka enda hefur hann stækkað mjög hratt. Hann var búinn að þyngjast um tæp 400g í fimm daga skoðuninni (var reyndar 8 daga) og núna mánaða gamall er hann 1 kg þyngri.

 

Krakkarnir tóku honum strax mjög vel, eru mjög góð við hann. Þau voru í fríi í 2 vikur eftir að hann fæddist, fengu frí milli jóla og nýárs. Þau fengu mjög góðan tíma til að aðlagast breytingunum. Allir voru þó fegnir þegar hin daglega rútína hófst eftir jólin. Litli bróðir er alltaf kvaddur á morgnanna með kossi og þau segja nánast alltaf:,, ég elska þig litli bróðir".

 

Gummi var heima öll jólin en fór svo að vinna eftir jól. Hann hættir hins vegar 16:30 á daginn,  nær í krakkana og við eigum góðan tíma saman seinni part fram að háttatíma. Gummi þurfti reyndar að fara á fund til Kaupmannahafnar núna 11.janúar síðastliðinn og kom heim aðfaranótt 13.jan. Jóni Arnóri var boðið í heimsókn til ömmu Ruth og Védís Gróa hjálpaði mér að passa litla stubb. Ég fórum með litla í vagninum í leikskólann á mánudag bæði þegar Védís Gróa fór í leikskólann og þegar ég náði í hana. Þegar ég náði í hana seinni partinn á mánudag var mér óskað til hamingju með skírnina. Ég sagði hissa að ég væri ekki búin að skíra og var þá spurð hvort við værum búin að nefna. Ég spurði af hverju þær héldu það fékk ég að vita að Védís Gróa hafði tilkynnt að litli bróðir heitir Ari. Hún talaði um það frá 32 viku að ég gengi með strák og hann ætti að heita Ari og hún hefur greinilega haldið sig við það.

 

Við erum að fara að skíra 24.janúar svo nú verðum við að gjöra svo vel að ákveða nafn. Við höfum fram á miðvikudaginn næsta til að ákveða okkur en þá hittum við Írisi prest. Við skírum hér heima eins og áður og bara nánasta fjölskylda verður viðstödd.

 

Í stórum dráttum hefur þetta borið á daga litla prinsins:

  • Brosti rúmlega viku gamall
  • Fór í fyrstu ferðina sína á Hvolsvöll rúmlega 2 vikna, gekk mjög vel
  • Fór í fyrstu veisluna hjá langömmu Sveinu 3.janúar og í heimsókn til ömmu Ruthar
  • Fór í heimsókn upp í vinnu til mömmu rúmlega 3 vikna
  • Fór í fyrsta göngutúrinn í vagninu 2 ½ vikna
  • Hjalaði aðeins 3 vikna
  • Búinn að þyngjast um 1 kg fyrsta mánuðinn.
  • Fékk í magann 3 vikna og er mikið með í maganum þessa dagana.

 

Vona að ég verði dugleg að blogga, hef ekki haft mikinn tíma þar sem maður er nánast alltaf með litla á handleggnum, mjólka sem og hugsa um eldri börnin.....brjálaða að gera.

 

Hildur Kristín Sveinsdóttir

Styttist í fćđingarorlof

28. október 2008 klukkan 21:18
Jáhh nú eru bara 2 vinnudagar eftir í vinnu. Var í skoðun í gær og barnið er orðið fastskorðað, þ.e.a.s það er komið í startholurnar að ryðjast út. Maður er í því að kveðja kúnnana og koma þeim á aðra, reyna að ganga frá og fleira. Verð reyndar í vinnunni í næstu viku að ganga frá öllum pappír og reikningum svo ég fái einhver laun núna á síðustu og verstu.

Það er örlítið farið að draga úr manni, þreytan aðeins að sækja að. Endist fínt í vinnunni en á ekki mikið eftir þegar ég kem heim. Um daginn voru krakkarnir óvenju mikið (að mér fannst, gæti verið dagsformið þann daginn) að væla í mér og ekki að hlýða. Þegar Védís Gróa hellt svo niður mjólkinni sinni um allt rauk ég upp og þurrkaði af með miklum brussugangi, lagði glösin harkalega frá mér og fleira. Jón Arnór fylgist aðeins með mér og segir svo: ,,Mamma af hverju gerirðu svona (hermdi eftir mér með því að leggja glasið sitt hrakalega til hliðar) og svona". Þá reyndi ég að útskýra fyrir honum að ég væri bara þreytt og pirruð (var ekki búin að fá svefnfrið síðustu nætur) og svo væru þau ekki búin að vera alveg nógu skemmtileg við mig. Hann hugsaði sig aðeins um og sagði svo: ,,mamma varstu nokkuð svona í vinnunni í dag". Ég neitaði því og þá spurði hann mig hvort ég ætlaði nokkuð að vera svona í búðinni á eftir (ætluðum að skreppa í heildsölu að finna flíspeysu). Nei, ég lofaði því að vera þæg.....heheh. Þegar börnin eru farin að hafa áhyggjur af hegðum foreldra sinna þá held ég að maður þurfi aðeins að fara að huga að eigin heilsu/svefni.

Við erum búin að vera mjög dugleg að taka úr frysti hinn ýmsa mat sem þar hefur fengið að dúsa þar lengi. Við vorum t.d. með svið um daginn og það var voða gaman að fylgjast með krökkunum spá í hvað þetta í ósköpunum væri. Fyrst voru þetta krókódílar, svo fiskar en svo sagði ég þeim að þetta væru KINDUR (er illa við að tala um lömbin) og þá sagði Jón Arnór bara dætssss!!! Þau borðuðu svo hjörtu og nýru um daginn, JA var voða duglegur en VG píndi ofan í sig nokkrum bitum og þegar hún var farin að kúgast hætti ég að djöflast í henni.

Ég fór á nálastungunámskeið þarsíðustu helgi og klára það næstu helgi, mjög fínt. Krakkarnir eru reyndar ekki vön því að ég sé svona mikið í burtu. Þegar ég kom af námskeiðinu á laugardeginum þá fékk ég að vita það að þau voru búin að sakna mín voða mikið (sem sagt ekki svo slæm). Védís Gróa bætti því svo við að maður ætti ekki að vinna um helgar .....og hana nú. Við áttum reyndar mjög ljúfa helgi síðustu helgi, fórum í sund og að renna á snjóþotu og í afmæli til Dagbjartar Láru og fleira. Áttum líka góða stund með mömmu og pabba sem og systkinum mínum - Siggi Bjarni á sunnudeginum. Ég náði nú að leika mér aðeins á snjóþotu en ég er ekki frá því að ég var eins og hvalur á þurru landi að reyna að standa upp í snjónum eftir að hafa rennt mér niður....fekar hlægilegt.

Er búin að bæta við fullt af myndum og er að vinna í að koma Kanadamyndunum okkar inn. Njótið vel
kv. HKS
Hildur Kristín Sveinsdóttir

Nýjar myndir

07. október 2008 klukkan 21:25
Jæja, held ég hafi slegið öll met í að blogga ekki. Fáránlegt hvað það verður erfitt að byrja þegar svona langur tími líður.

Við fjölskyldan höfum átt mjög gott sumar. Við krakkarnir fórum í 5 vikna frí en Gummi tók bara 3 vikur. Fríinu eyddum við að mestu hjá frændfólki Gumma á Prince Edward Island í Kanada. Þar bjuggum við í parhúsi hjá frænda hans í Georgetown. Við vorum mjög heppin með veður, fórum í hjólatúra, bíltúra, á ströndina, í vatnsrennigarð, dýragarð, fórum að veiða skelfisk og fleira.

Hér heima fórum við í Þórsmörk yfir helgi með krakkana ásamt Sigrúnu vinkonu og fjölskyldu. Við náðum að ganga upp á Vífilfell, Esju, Úlfarsfell og Valahnjúk. Við fóru um Verslunarmannahelgina á Snæfellsnesið. Við skoðuðum Ölkeldu, kíktum á kunningjakonu mín á Hofi sem rekur þar gistiheimili, fórum Jökulháls, gengum upp að Snæfellsjökli, keyrðum í gegnum Rif, Ólafsvík, skoðuðum Djúpalónssand, Hellnar. Við gistum aðra nóttina í Langaholt og hina í Arnarstapa. Við Védís Gróa gengum svo í áttina að Barnaborgum en gáfumst upp því það var aðeins of langt fyrir litlar fætur. Yndisleg helgi sú.

Fyrir tveimur vikum fórum við fjölskyldan ásamt systkinum mínum og mömmu og pabba inn í Emstrur og gistum heila helgi þar. Við fórum í göngu eftir Markafljótsgljúfri, fórum í 4 tíma jeppaferð frá Emstrum eftir Hellnarleið inn að Krók, þaðan gegnum Hungurfit að Fjallabaki Syðri og norður í Álftavatn. Við fórum svo Mælifellssandinn heim að skála aftur. Á sunndeginum fórum við góðan hring um Emstrurnar, fórum niður í Botna og að gamla skálanum. Við komum svo við í Fljótshlíðinni og skoðuðum nýuppgrafinn helli sem heitir Mögugilshellir og er líklega eini blágrýtishellirinn í heimi....mjög gaman.

Síðustu helgi var Gummi á bakvakt og að djamma með félögunum svo við krakkarnari fórum austur á Hvolsvöll og vorum þar undir góðu yfirlæti. Við kíktum í heimsókn til ömmu og afa í Króktún, fór í göngu með afa og fleira.

Nú er mín komin 7 mánuði á leið eða tæpar 31 viku og fer hratt stækkandi. Ég er að vinna fram til 1. nóv og þá ætlar mín aldeilis að taka sig taki í að blogga.

Krakkarnir eru mjög hress, Védís Gróa er farin að sjá um sig sjálf á morgnanna. Þau eru miklir spekingar og fá sjaldan nóg af knúsi og að segja manni hve mikið þau elska okkur. Yndisleg með meiru. Védís Gróa byrjaði á nýrri deild í haust og líkar rosa vel. Jón Arnór er farinn að fá vini í heimsókn eftir leikskóla.

Læt myndirnar svo tala sínu máli, vona að ég verði duglegri í nánustu framtíð að blogga......
Hildur Kristín Sveinsdóttir

Samantekt undanfarinna mánuđa

17. apríl 2008 klukkan 21:51
Já, ekki búin að vera dugleg undanfarið.

Fullt búið að gerast, við náðum að fara um 3 sinnum á jeppanum að leika okkur á skíðum, snjóþotum, torfærast og losa fasta bíla í kringum páskana. Höfum farið ein og með góðum vinum. Ragnheiður, Sóldís, Siggi Bjarni, Þórir og Pétur (vinnufélagi Gumma) og fjölskylda komu með okkur í eitt skiptið. Páskadagur var mjög fínn. Við hittumst systkinin hittumst eftir að allir voru búnir að finna páskaeggin sín. Flestir fóru í göngu en fótboltabullurnar horfðu á fótbolta. Eftir það var farið í Bláa Lónið, svo var hist heima hjá Jónu og Svenna og borðað óhóflega og fengið sér rauðvín.

Við höfum gert ýmislegt skemmtilegt undanfarnar helgar. Hjálpað til við fermingu, gist heima í Öldugerði án þess að hafa ömmu og afa. Krakkarnir stoppuðu ekki að spyrja um þau. Þau komu hins vegar á miðvikudeginum eftir þessa helgi og færðu börnunum fullt af gjöfum. Við kíktum svo á pabba gamla helgina á eftir á afmælisdaginn og færðum honum gjöf. Við eyddum góðum degi með þeim og sváfum eina nótt. Á sunnudeginum var svo rifjað upp sveitastörfin. Sóldís fékk að koma með okkur austur á laugardeginum eftir að hafa dvalist hjá okkur á föstudeginum og kom svo með okkur þennan sunnudag í sveitina. Við áttum góðar stundir með Ragnheiði og Þorvaldi og krakkarnir með dýrunum og Góu (Tíkinni).

Helgina á eftir fengum við svo að vera með Dagbjörtu og Sunnu Lind hjá okkur yfir nótt. Krakkarnir voru reyndar með niðurgang og Jón Arnór var líka með uppgang. En þau voru að mestu búin að jafna sig á laugardeginum sem stelpurnar komu til okkar. Það var mikið fjör hjá þeim úti sem inni.

Næstu helgi er svo Gummi að fara erlendis á ársthátíð og við krakkarnir fáum Sóldísi Söru í heimsókn. Sigrún vinkona á afmæli, stefnan er að hitta hana og aldrei að vita nema við kíkjum líka austur.

Það er brjálað að gera hjá okkur Gumma í vinnunni. Við söknum Gumma, hann er öllum stundum í vinnunni (finnst okkur). Védís Gróa er búin að hrella okkur óvenju mikið undanfarið á næturnar. Er komin með tíma hjá svefnráðgjöf enn einu sinni. Skapið mitt er ekki það besta þessa dagana, farin að sýna horn og hala aftur eftir langan tíma. Þarf að fara að anda inn um nefið og út um munninn svo styttist í æðisleg frí.......Akureyri yfir helgi og ......NY ......get ekki beðið.

jæja þar til næst bleeee
Hildur Kristín Sveinsdóttir

Veikindi veikindi

17. febrúar 2008 klukkan 21:45
Jæja þá hafa krakkarnir og kallinn tekið út heilmikil veikindi. Védís Gróa fékk strephtococca fyrir 3 vikum síðan, Jón Arnór viku seinna og Gummi nokkrum dögum á eftir honum. Gummi var svo nýstiginn upp þegar Védís Gróa veikist aftur, fékk hita og kvef. Hún er hress núna og strákarnir líka, eru að týna í sig síðustu skömmtunum af sýklalyfjum.

Krakkarnir eru voða duglegir, styttist óðum í að drengurinn verði 4 ára. Hann er í óðaönn að leiðrétta litlu systur en er um leið að æfa sig sjálfur að segja S án þess að stinga tungunni milli tannanna og eins reynir hann að æfa Þ. Védís Gróa reynir að gera eins og stóri bróðir segir en þau hafa bæði takmarkaða þolinmæði gagnvart þessu. Jón Arnór pirrast stundum þegar hún nær þessu ekki og þá minnir hann örlítið á móðurina. Védís Gróa kýs líka stundum að heyra ekki hvað hann segir þá er henni nóg boðið.

Védís Gróa er voða montin með sig því hún fór að fara sjálf á klósettið fyrir einhverjum vikum síðan. Hún notar fótstigið sem bróðir hennar smíðaði handa henni til að ná upp á klósettið því það er svo hátt uppi.

Ég var alla síðustu helgi á námskeiði, reyna að bæta við mig þekkingu. Ég var tekin fyrir á námskeiðinu. Donatelli (sá sem var að kenna) kom til að svara spurningum þegar við vorum að prófa á hvort öðru. Eftir að hafa skoðað mig tilkynnti hann mér að ég væri sigurvegari námskeiðsins for the most pathetic shoulders. Ég fékk svo að vera sýniseintak í meðferð á sunnudeginum og er ég búin að vera alla vikuna að jafna mig eftir herlegheitin. Védís Gróa var mjög ósátt við mömmu sína að vera svona að heiman allan daginn í helgarfríinu. Þegar ég kom heim laugardagskvöldið meiddi hún sig og ég ætlaði að fá að knúsa hana. En þá hundsaði hún mig og fór beint í fangið á bróður sínum sem knúsaði hana fyrir mig og klappaði henni á bakið. Hann spurði hana hvort hann ætti að kissa á meiddið og hún sagði já og benti honum hvar ætti að kissa. Get ekki neitað að þau voru algjörar dúllur en hún lét mig fá það óþvegið. Alla síðustu viku hefur pabbi bara mátt hugga hana í veikindunum.

Við Gummi skiptumst á að vera með börnin, þegar eitt kom heim fór hitt í vinnu. Gummi hefur verið að vinna fram að miðnætti nánast alla þessa viku. Jón Arnór var frekar svekktur yfir því að pabbi hans var ekki heima að leggja sig á þriðjudagskvöldið. Ég notaði heimspekilega skýringu á því af hverju við þurftum að gera þetta svona, einhverja rullu um að við verðum að vinna svo við getum keypt í matinn og fl. Á miðvikudaginn ætlaði Gummi að vera heima um kvöldið en ég var heima með Védísi þann dag. Jón Arnór sagði svo á leiðinni út í leikskólann að þegar hann kæmi heim þá yrði bara ein stelpa og 2 strákar (Þeir Gummi og Védís Gróa). Ég sagði honum að það væri ekki rétt því ég yrði líka heima. Þá svaraði hann um hæl að ég þyrfti að fara að vinna þegar þeir kæmu heim því ég var heima um daginn.......spekingurinn mikli náði ræðunni greinilega kvöldið áður.

Við Gummi stungum svo af um helgina í bústað til að ná upp svefni og eyða smá tíma saman til tilbreytingar. Mamma og pabbi voru hér heima með krakkana, fóru með þau í afmæli til Orra Sveins og Heiðdísar Huldar á laugardaginn og í sund á sunnudaginn. Jón Arnór tók því hæfilega vel að við værum að fara, slysaðist aðeins í rúmið fyrstu nóttina. En svo gekk bara voða vel og þau nutu tímans með ömmu og afa. Við Gummi vorum við Apavatn í bústað, fórum í göngu fjallahringinn á Laugarvatni eða réttar sagt óðum við snjóinn upp að hnjám svo þetta var heilmikil áreynsla. Við fórum svo í sundi í gömlu góðu laugina á Laugarvatni, elduðum æðislegan mat um kvöldið, drukkum léttvín og settum met í að sofa. Ekki frá því að maður sé aðeins með í bakinu eftir að hafa sofði svona mikið. Við komum svo við í lauginni í Borgum á leiðinni heim.

Þetta var yndisleg helgi og við ættum að geta tekist á við allt þessa vikuna.....
Hildur Kristín Sveinsdóttir

Allt komiđ í samt horf

25. janúar 2008 klukkan 15:01
Nú er maður byrjaður að vinna á fullu aftur og rembast við að koma sér í ræktina 3 sinnum í viku he þegar vel gengur.18.jan hittumst við kellurnar frá grunnskóla á B5 og borðuðum saman. Rifjað var upp gamlar skemmtilegar minningar frá því forðum. Hrikalega gaman að hitta ykkur elskurnar vonandi sjáumst við svo fljótt aftur. Við fórum í frábært partý hjá Steinunni systur en hún var að halda upp á 35 ára afmæli sitt 19. janúar síðastliðinn (átti samt afmæli 14.jan). Það var 80's þema í partýinu. Gestirnir voru svo duglegir að dressa sig upp að við sáum fljótt að það var engin ástæða til að skreyta. Sungið var við gítarspil Bjarna Guðmunds, sungið 80's lög í singstar og dansaði við diska sem við Steinunn höfðum fundið til fyrir partýið með að sjálfsögðu 80's lögum. Fjörið entist fram til hálf sex um morguninn. Guði sé lof fyrir Stellu frænku Gumma, hún passaði fyrir okkur um kvöldið og tók morgunvaktina. Hún var að keppa í hópfimleikum á laugardeginum og var svo að æfa upp í Gerplu á sunnudeginum svo þetta kom sér voða vel að fá hana  hingað um kvöldið. Við fylgdumst með henni keppa á laugardeginum og við Védís Gróa höfðum voða gaman af. Þorvaldur var tekinn föstum tökum af Védísi Gróu og teymdur um allt (hann er í voðalegu uppáhaldi hjá henni). Við vorum rétt komnar upp í stúku þegar hún kom auga á Þorvald langt fyrir ofan. Hún gerði sér lítið fyrir og hrópaði yfir alla stúkuna HÆ ÞORVALDUR.......sem sagt hann var vel kynntur fyrir öllum áhorfendum. Strákarnir fóru svo í jeppaferð meðan við stelpurnar lögðum okkur, við hittumst svo í sundi og fylgdumst með Stellu og Lindu á æfingu á eftir.

Ég lenti svo í heilmikilli lífsreynslu í vinnunni síðastliðinn miðvikudag þegar maður fór í hjartastopp inni í sal í BATA. Ég og önnur sem er að vinna með mér reyndum endurlífgun án árangurs þannig að hann dó í höndunum á okkur. Þegar sjúkraflutningamennirnir og læknir komu reyndu þeir líka án árangurs að lífga hann við. Við vorum öll sem lömuð næstu daga á eftir. Við settumst öll niður og fórum yfir þetta með presti eftir að kúnnin okkar hafði verið fluttur í burtu sem var mjög gott. Okkur var tjáð að hann hefði líklega ekki átt neina von miðað við sjúkrasögu. Eftir að við fórum yfir málið kom okkur saman um að við hefðum brugðist rétt við og reynt allt hvað við gátum en þetta er hrikalega erfitt samt sem áður. Það er alltaf áfall að missa fólk svona í höndunum á manni en maður vinnur sig úr því. Maður er svo sannarlega reynslunni ríkari eftir þetta allt saman.

Við frænkurnar hittumst á miðvikudagskvöldið síðasta (Guðlín, Adda og ég) og áttum voða góðar stundir saman. Í gærkvöldi fórum við nokkur úr Bata á Jesus Christ superstar og við skemmtum okkur alveg rosalega vel.

Ragnheiður mín til hamingju með flottasta kaggann, alveg ómótstæðileg fyrir en það verður slefað yfir þér á kagganum hehe

Sigrún og Bjarki til hamingju með íbúðarkaupinn, hlökkum rosalega til að fá ykkur öll í nágrennið, mosó er fínn staður.

Jæja nóg í bili  ( ýmist í ökkla eða eyra)
Hildur Kristín Sveinsdóttir

Jólin jólin

25. janúar 2008 klukkan 14:32
Rétt að segja frá hvað þessi blessuðu jól voru yndisleg og allt of fljót að líða. Við fengum Ruth til okkar 2 dögum fyrir jól og við vorum um það bil tilbúin að taka á móti jólunum daginn fyrir Þorláksmessu. Á sunnudeginum fórum við svo fremur snemma í bæinn og þrömmuðum hann fram og til baka. Þegar heim var komið fengum við okkur smá snarl, skreyttum tréð og sötruðum svo jólaglögg og gúffuðum í okkur nammi fram á nótt. Á aðfangadagsmorgun var svo kjötið undirbúið fyrir kvöldið og ris a la mande útbúið. Eftir möndlugraut og rúgbrauð með síld fóru allir upp í rúm og sváfu eins og ungabörn til 16:00. Eftir það var búið sig í kirkju, krakkarnir voru eins og englar í krikjunni. Eftir mat var tekið upp 4 pakka og svo farið í háttinn. Við höfðum það voða gott um kvöldið og nutum þess svo að taka upp restina af pökkunum á  jóladagsmorgun. Eftir að við lögðum okkur aftur þann daginn fórum við austur í jólaboð til ömmu Steinunnar á Hvolsvelli og sváfum þá nótt hjá mömmu og pabba. Við áttum yndislegar stundir með mömmu, pabba, Steinunni, Stebba og co á annan í jólum. Við lékum okkur þann daginn á skíðum, snjólseða og þotum, reyndum að rifja upp gamla takta. Um kvöldið fórum við svo heim. Við ætluðum okkur alltaf aftur austur en það varð ekkert af því. Í stað þess eyddum við miklum tíma í náttfötum hér heim fyrir, lékum að nýja dótinu, fengum Sóldísi og Ragnheiði öðru hvoru í heimsókn, lékum okkur svona 2 klst á dag úti í snjónum (það var í eina stundin sem við vorum ekki í náttfötum). 

Okkur Gumma var boðið í spilakvöld hjá Möttu og var það í eina skipti sem við drifum okkur upp úr sófanum (að vísu var Gummi á vakt öll jólin og gat því lítið gert utan vinnu). Fyrr um daginn sáum við Arnar Dag í fyrsta skipti, algjört krútt.

Við borðuðum svo systkinin ( - Siggi Bjarni sem er staddur í Ástralíu) heima hjá Steinunni og Stebba. Við fengum okkur rosalega góðan forrétt (túnfisk, silung, salat, paté og fleira), hreindýr í aðallrétt og fórum svo heim og fengum okkur heimabúin toblerone ís í eftirrétt. Hrikalega gaman og notalegt. Eftir að hafa sett á Védísi Gróu heyrnaskjól og eyrnatappa sofnaði hún loksins úrvinda af þreytu og skelfingu (hrædd við flugeldana). Matta og Gunni komu svo og horfðu á áramótaskaupið með okkur og hoppuðu inn í nýja árið með okkur. Eftir miðnætti fengum við svo fullt af mjög skemmtilegu fólki til að spila við fram undir morgun.
 
Á nýju ári var byrjað á að borða ennþá meira af mat í jóla- og afmæliboði hjá ömmu 5.jan og ennþá meira hjá tengdó sama dag (upphitun þrettándagleði). Okkur var svo boðið í 3 afmæli 13.jan og gerði ég mér lítið fyrir og mætti í öll boð, er í æfingu sko. Krakkarnir og Gummi fóru með mér til Steinunnar systur og Ásu Dagný en svo fór ég ein til Gunnars hennar Möttu.
Hildur Kristín Sveinsdóttir