Drengur fæddur, jólahátíð og margt fleira.
Þá erum við orðin stórfjölskylda hér í Skálaheiðinni en við eignuðumst annan son 18.des síðastliðinn. Frúin var úrkumla vonar um að barnið mundi fæðast fyrir jól. Þegar ég hafði þrifið klósettið í hundraðasta skiptið, skúrað gólfið, þvegið af rúmunum 3 sinnum og þrammað Kópavoginn svo gangstéttar létu á sjá, var mín farin að finna út hvaða óléttukjól skildi draga fram fyrir jólahátíðina.
Fyrsta daginn sem ég var hætt að búast við að eitthvað mundi gerast fór allt af stað og þá tók afneitunin við. Var viss um að þetta væri bara eitt af þessum skiptum sem verkirnir væru aðeins að stríða mér og myndu svo hætta. Ég var á leið á Selfoss að heimsækja ömmu Sveinu ásamt Steinunni systur þann. Ég hafði það af að gera jólaísinn þennan sama dag rétt áður en lagt var í hann upp í Árbæ til Steinunnar. Ég stóð mig að því að vera farin að dansa mig í gegnum verkina við hrærivélina sjóðheitum lambada dansi. En á Selfoss skildi farið. Ég tók með mér TNS tækið (verkjastillandi rafmagnsmeðferð), pakka til ömmu og konfekt. Þegar í Árbæ var komið hætti ég við að fara því ég vildi ekki leggja það á Steinunni og fjölskyldu að hafa mig í þessu ástandi í bílnum alla leið á Selfoss. Þegar heim var komið (16:30) fóru hins vegar hlutirnir að gerast og klst síðar var ég búin að panta Ragnheiði vinkonu hingað til að taka við krökkunum þar til mamma kæmi. Mamma (sem var svo heppilega stödd á Selfossi til að hitta okkur systur hjá ömmu) var beðin um að hætta við heimferð og koma þess í stað hingað til að taka við börnunum. Ég var hin rólegasta þegar ég fór af stað á fæðingadeildina, kom meira að segja aftur upp úr bílnum til að kveðja krakkana. Á þeim tímapunkti var ég enn ekki sannfærð um að fæðingin væri farin af stað, náði meira að segja að sannfæra Ragnheiði að ég væri hugsanlega að koma aftur heim.
Við vorum komin upp á fæðingadeild kl 19:15. Ljósmóðirin var ekki sannfærð að ég væri komin af stað, ekki frekar en ég. Hún skoðaði mig og komst að því að best væri að hraða mér á fæðingastofu því ég var komin með 7 í útvíkkun. Þegar inn á fæðingastofu (stofa 19 á Hreiðrinu) var komið leið ekki nema klst og þá var drengurinn kominn. Ég fór í bað þegar ég var orðin þreytt á TNS tækinu og þar fæddi ég prinsinn. Hann var 3635g og 51 cm.
Hann var strax rosalega duglegur að drekka enda hefur hann stækkað mjög hratt. Hann var búinn að þyngjast um tæp 400g í fimm daga skoðuninni (var reyndar 8 daga) og núna mánaða gamall er hann 1 kg þyngri.
Krakkarnir tóku honum strax mjög vel, eru mjög góð við hann. Þau voru í fríi í 2 vikur eftir að hann fæddist, fengu frí milli jóla og nýárs. Þau fengu mjög góðan tíma til að aðlagast breytingunum. Allir voru þó fegnir þegar hin daglega rútína hófst eftir jólin. Litli bróðir er alltaf kvaddur á morgnanna með kossi og þau segja nánast alltaf:,, ég elska þig litli bróðir".
Gummi var heima öll jólin en fór svo að vinna eftir jól. Hann hættir hins vegar 16:30 á daginn, nær í krakkana og við eigum góðan tíma saman seinni part fram að háttatíma. Gummi þurfti reyndar að fara á fund til Kaupmannahafnar núna 11.janúar síðastliðinn og kom heim aðfaranótt 13.jan. Jóni Arnóri var boðið í heimsókn til ömmu Ruth og Védís Gróa hjálpaði mér að passa litla stubb. Ég fórum með litla í vagninum í leikskólann á mánudag bæði þegar Védís Gróa fór í leikskólann og þegar ég náði í hana. Þegar ég náði í hana seinni partinn á mánudag var mér óskað til hamingju með skírnina. Ég sagði hissa að ég væri ekki búin að skíra og var þá spurð hvort við værum búin að nefna. Ég spurði af hverju þær héldu það fékk ég að vita að Védís Gróa hafði tilkynnt að litli bróðir heitir Ari. Hún talaði um það frá 32 viku að ég gengi með strák og hann ætti að heita Ari og hún hefur greinilega haldið sig við það.
Við erum að fara að skíra 24.janúar svo nú verðum við að gjöra svo vel að ákveða nafn. Við höfum fram á miðvikudaginn næsta til að ákveða okkur en þá hittum við Írisi prest. Við skírum hér heima eins og áður og bara nánasta fjölskylda verður viðstödd.
Í stórum dráttum hefur þetta borið á daga litla prinsins:
- Brosti rúmlega viku gamall
- Fór í fyrstu ferðina sína á Hvolsvöll rúmlega 2 vikna, gekk mjög vel
- Fór í fyrstu veisluna hjá langömmu Sveinu 3.janúar og í heimsókn til ömmu Ruthar
- Fór í heimsókn upp í vinnu til mömmu rúmlega 3 vikna
- Fór í fyrsta göngutúrinn í vagninu 2 ½ vikna
- Hjalaði aðeins 3 vikna
- Búinn að þyngjast um 1 kg fyrsta mánuðinn.
- Fékk í magann 3 vikna og er mikið með í maganum þessa dagana.
Vona að ég verði dugleg að blogga, hef ekki haft mikinn tíma þar sem maður er nánast alltaf með litla á handleggnum, mjólka sem og hugsa um eldri börnin.....brjálaða að gera.
:)