Aðalvalmynd

Auglýsing

Daníel Ari

22. febrúar 2009 klukkan 20:34
 

Þá er búið að skíra litla prinsinn okkar og fékk hann nafnið Daníel Ari. Daníel er nafn sem við höldum bæði upp á og mátuðum á Jón Arnór á sínum tíma. Okkur fannst það hins vegar ekki passa nógu vel með Jóni svo við ákváðum að eiga það inni. Eins og sést á færslunni hér að ofan var auðvelt að finna nafn með Daníel þar sem Védis Gróa var búin að því fyrir okkur.

Daníel þýðir: Guð er dómari minn (Siggi Bjarni er með tattú á bakinu: Only God can judge me....gaman að því)

Ari þýðir: Örnin hraðfleygi, á vel við litla manninn þar sem hann kom mjög hratt í heiminn þegar hann var tilbúinn.

Við skírðum hér heima eins og áður og okkar allra nánasta fjölskylda var viðstödd athöfnina.. Við vorum með súpu og brauð og svo skírnarköku með kaffinu. Ruth bjó til ljúffenga sjávarréttasúpu og mamma bakaði skírnarkökuna. Ég bætti svo 2 frönskum súkkulaðitertum við. Þetta var ósköp ljúf stund hér í Skálaheiðinni. Þeir vinir sem höfðu samband voru svo neyddir í að gera afgöngum skil. Séra  Íris var svo góð að vígja drenginn eins og hin tvö. Það má segja að hún sé aðeins farin að þekkja okkur fjölskylduna því hún gifti okkur Gumma lika. Krakkarnir halda mikið upp á Írisi eins og sjá mátti þegar þau skírðu annan heimalinginn á Litlu-Reykjum eftir henni.

 

Af okkur er allt gott að frétta. Allt gengur sinn vanagang. Við komumst að því í 6 vikna skoðuninni að Daníel Ari var búinn að lengjast um 8 cm og þyngjast um 1500 g, ekkert  smá duglegur að stækka. Védís Gróa og Jón Arnór eru búin að vera núna í íþróttaskóla Breiðabliks á laugardögum og standa þau sig voða vel þar. Við erum nýbúin að funda með deildarstjóra deildar Védísar Gróu I leikskólanum og lét hún mjög vel af stelpunni. Hún passar ætíð upp á að engin byrji að borða við matarborðið fyrr en búið er að segja gjörið svo vel. Hún er líka dugleg að hjálpa hinum að klæða sig út og þiggur gjarnan þjónustuna ef aðrir vilja hjálpa henni. Henni eru settar þær reglur að fá bara að vera í pilsi á föstudögum þar sem Jón Arnór (sem vildi á tímabili alltaf fara í stuttbuxum í leikskólann) var búinn að finna það út að hann gæti alveg eins verið í sokkabuxum og stuttbuxum eins og VG í sokkabuxum og pilsi. Þau eru að læra dagana og Védís Gróa tengir alltaf pils við föstudaga. Þegar eitthvað af stelpunum eða leikskólakennurunum mæta í pilsi þá spyr hún alltaf hvort það sé föstudagur. Þegar hún svo kemst að því að svo er ekki er viðkomandi skammaður fyrir að vera í pilsi. Nú hafa leikskólakennararnir tekið þann pól I hæðina að mæta bara í pilsi á föstudögum svo það ruglist ekki allt kerfið. VG er sem sagt búin að koma á nýrri reglu á Lundi, seig stúlkan sú. Jón Arnór er rosalega duglegur strákur, farinn að skrá sig inn á heimlistölvuna sjálfur og starta leik, en núna veit hann að það má ekki nema með samþykki foreldra. Hann skrifar alla stafi og er farinn að leysa einföld reiknisdæmi. Hann komst sjálfur að því að þegar Daníel yrði 3 ára þá yrði hann sjálfur orðin 7 ára.

 

Þessa dagana vinnum við Gummi hörðum höndum að finna bíl fyrir fjölskylduna sem hýsir bílstólana 3 í aftursætinu. Gummi vill ekkert nema 4W bíla og það get ég sagt ykkur að slíka bíla er ekki auðvelt að finna sem eru á viðráðanlegu verði. Núna rúntar Gummi milli bílasala með stólana til að máta í aftur í  bíla. Gaman að því.....fáið frekari frettir síðar. Gummi kellu sinni flottan morgunmat og gjafakort í Mecca Spa I tilefni konudags,.....get ekki beðið eftir að taka það dekur út. Yndislegur maður Þeir feðgar eiga svo afmæli næstu helgi og áætlum við að halda smá teiti að því tilefni.

Later

luv

Hildur Kristín Sveinsdóttir

Skrifa athugasemd